NÚVITUND FYRIR ÞIG
Augnhvíla
Augnhvíla er dásamlegur 250 gr þungur poki, fylltur með lífrænu hveitikorni. Ilmandi eða ilmlaus allt eftir hvað hentar þér best fyrir þína hvíld, slökun, yoga nidra eða liggjandi hugleiðslu iðkun.
Við notkun pokans verður til vægur þrýstingur á augnlokin. Vagus taugin örvast, og sendir róandi boð aftan á hálsinn, axlirnar og niður á bringu, í hjartað og magasvæðið. Þannig myndast enn betri ró við alla slökun og hvíld.
Augnhvílan kemur í fallegri gjafaöskju með upplýsingum um ávinning hennar við notkun. Handgerð. Hver og ein einstök í litasamsetningum.
Til í fleiri litum og fæst í gegnum skilaboð á síðunni.
Verð kr. 4990,-

Sekúndur og mínútur
53. Núvitundarspjöld
Líkt og margir hef ég leitast eftir að finna jafnvægi og betri tengingu við sjálfa mig í mínu lífi, og þekki það vel að gleyma mér og því sem ég þarfnast í hraða daglegs lífs.
Einlægur áhugi minn og þekking á taugakerfinu, almennri líðan og því samspili sem líkami og hugur eiga var kveikjan að núvitundar kortunum Sekúndum & mínútum.
Sekúndur & mínútur er byggt á hugmyndum um sjálfssefjun og jarðtengingu. 53. stuttar, einfaldar athafnir sem geta stuðlað að meiri ró og betri líðan.
Oft þurfum við lítið frekar en mikið, stutt frekar en langt og einfalt frekar en flókið til að gefa okkur það rými sem við þörfnumst fyrir okkur sjálf.
Spjöldin eru 54. stk hönnuð af mér, prentuð á Íslandi á gæða pappír og handpökkuð af kærleika.
Má bjóða þér að draga kort?
Verð kr.4990,- hafa samband
Fást einnig hjá :
Dharma heilsa á Tunguhálsi og í vefverslun
Litla Garðbúðin Selfossi í verslun og vefverslun

