top of page
All Posts


Afhverju ertu orðin svona sjúklega heilög týpa?
AF HVERJU ERTU ORÐIN SVONA SJÚKLEGA HEILÖG TÝPA..."Þórhildur" í bókhaldinu er komin með geislabaug, meira hvað hún er heilög týpa... Þrátt fyrir mikla vitundarvakningu þá er alltaf einhver í "kaffistofu tjattinu" sem hefur orð á manneskju sem virðist vera orðin þessi "sjúklega heilaga týpa". Sá sem hefur orð á málefninu er mögulega sá sem hefði mest þörf fyrir að líta inn á við, kannski? Ég trúi að við finnum öll okkar leið til að lifa, engin ein leið er réttari en önnur, mik
kristjanajenny
3 min read


Lífið er alltaf að ýta í þig, alveg þar til þú breytir
Gamall póstur frá 2020. Ég þekki þetta svo vel sjálf. Sem betur fer eru þeir dagar liðnir að ég leggist í kör vegna þess að ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að taka skref áfram. Eitt sinn var best að láta sér bara líða illa og vonast til að eitthvað breyttist. Það er gott að leyfa sér að vera í tilfinningunni, og oft nauðsynlegt, en mikilvægt að staðna ekki þar. Ég er einmitt á þeim stað núna að ég veit að ég þarf að breyta. Lífið er sannarlega að ýta við mér og minn
kristjanajenny
2 min read


Lýst er eftir skapandi manneskju...
Það er auðvelt að týna sjálfum sér. Ég ímynda mér að það sé sameiginlegt hjá okkur flestum að hafa upplifað það einhverntímann á ævinni að finnast maður vera algjörlega týnd/ur. Ég hef oftar en ég vil muna gleymt því sem nærir mig. Í mínu tilfelli er það sköpun. Næringin mín liggur í hverskyns sköpun. Það nærir mig að gleyma mér í verkefni sem krefst þess að ég sé að láta reyna á öll skynfærin. Það er í sköpun sem ég "finn" sjálfa mig aftur. Sköpun getur verið svo margvísleg.
kristjanajenny
1 min read


Hvernig áhrifavaldur ert þú?
Þú og tilvera þín Þú og nærvera þín Þú og orðin þín Þú og það sem þú gerir Þú og það sem þú lofar Allt sem þú framkvæmir í þínu lífi hefur einhver áhrif. Við vitum ekki hvenær við erum að hafa áhrif. En það er ljóst að við höfum áhrif. Jákvæð og neikvæð áhrif. Hvaða áhrif vilt þú hafa? Hvernig áhrifavaldur vilt þú vera? Við getum haft svo dásamlega stórkostleg áhrif með orðum og gjörðum, við getum einnig haft svo hrikalega sorgleg áhrif með orðum og gjörðum.
kristjanajenny
1 min read


"Allir" sem eru svo ekki allir.
Afhverju er ég ekki hlaupari eins og "allar" hinar konurnar? Afhverju er ég ekki á fjöllum eins "allir" hinir? Afhverju er ég ekki jafn skemmtileg og "allir"? Afhverju er ég ekki jafn sparsöm eins og "allir" hinir? Afhverju er ég ekki skipulagðari mamma og finn uppá allskonar eins og "allar" hinar mömmurnar? Afhverju er ég ekki í Heiðmörk með nestiskörfu og teppi? Þetta allt og allt hitt sem suðar í kollinum á mér, mögulega þér og kannski öðrum eru sjálfs árásir og dómharka í
kristjanajenny
2 min read


Hver kann að meta þig?
Þegar við upplifum að umhverfið okkar kunni ekki að meta okkur, fólkið í kringum okkur sjái ekki það góða í okkur eða okkur sé tekið sem sjálfsögðum hlut, þá er gott að bakka aðeins og byrja á að spyrja sig: KANN ÉG AÐ META MIG ? Sérð þú í ÞÉR það sem þú óskar eftir að aðrir sjái í þér? Er þitt eigið álit á þér að þér finnst þú alltaf þurfa að vera einhvernveginn öðruvísi? Finnst þér þú endalaust þurfa að sanna þig fyrir sjálfinu? Byrjum á réttum enda. Byrjum á að sættast, hr
kristjanajenny
1 min read


Að vera meðvitaður um að æsa ekki upp vitleysuna í sjálfum sér.
Þessi póstur er gamall og góður en á ennþá jafn vel við. Það er ekki langt síðan hausinn á mér fór í þá vitlaustu ferð sem hann hefur farið í lengi, jafnvel í nokkur ár. Ferðalag sem átti sér engin takmörk. Allt þetta hugar ferðalagið var stutt af mínum eigin lygum við sjálfa mig. Hversu ómöguleg ég væri, hvaða röngu leið ég væri á, hvernig líf mitt væri, hvaða misheppnuðu stefnu ég væri að taka ásamt öðrum eldgömlum rótgrónum hugsanamynstrum sem ég hafði unnið að því að uppr
kristjanajenny
2 min read
bottom of page
