top of page

Hættu að æsa þig sjálfa upp

​

Það er ekki langt síðan hausinn á mér fór í þá vitlaustu ferð sem hann hefur farið í lengi, jafnvel í nokkur ár. Ferðalag sem átti sér engin takmörk. Allt þetta hugar ferðalagið var stutt af mínum eigin lygum við sjálfa mig. Hversu ómöguleg ég væri, hvaða röngu leið ég væri á, hvernig líf mitt væri, hvaða misheppnuðu stefnu ég væri að taka ásamt öðrum eldgömlum rótgrónum hugsanamynstrum sem ég hafði unnið að því að uppræta. 

Ég er mjög mennsk, en á sama tíma mjög meðvituð um hugarfar, en samt tókst mér að lenda á þessum stað vitandi betur.

Því miður allra vegna tók ég það skrefinu lengra og leyfði mínu slæma hugar ástandi að tala hátt í stað þess að eiga samtal við sjálfa mig og gera þetta upp innra með mér.

 

Regla #1 eiga samtalið innra með sér. Þarna var þessi regla algjörlega óvirk.

 

Ferðalagið stóð stutt yfir, guði sé lof ég var löngu orðin þreytt og langaði aftur í eðlilegt ástand. En þetta var fín áminning fyrir mig manneskjuna sem er talskona sjálfsástar að minna mig á að  sama hvert við erum komin þá erum við manneskjur og okkur verður á að særa okkur sjálf og jafnvel aðra í kjölfarið.

Oft þarf svona skref afturábak til áminningar og koma okkur aftur á rétt spot, við viljum ekki stoppa þarna lengi þegar við höfum náð betri árangri og vitum orðið betur.

​

Þegar ég var komin aftur "heim" í sjálfa mig fannst mér það tilvalið efni í heiðarlegan póst.

Þetta gæti verið áminningin sem við þurfum öll annað slagið. 

Fyrirgefningin er sterkur leikur gagnvart okkur sjálfum, við fyrirgefum öðrum oft auðveldar en okkur sjálfum.

Hvað finnst þér?

Þegar við upplifum að umhverfi okkar kunni ekki að meta okkur, fólkið í kringum okkur sjái ekki það góða í okkur, fólk taki þér sem sjálfsögðum hlut, þá er gott að bakka aðeins og byrja á að spyrja sig:

KANNT ÉG AÐ META MIG ?

Sérð þú það sem þú óskar eftir að aðrir sjái í þér?

 

Er þitt eigið álit á þér að þér finnst þú alltaf þurfa að vera öðruvísi, þurfa að sanna þig, þurfa að sýna að þú sért verðug/ur, verðugt??

 

Byrjum í réttum enda, byrjum á að sættast, hreinlega sættast við okkur sjálf og hver við erum, og ef það styður við uppbyggingu þá má taka það frá þeim enda að skoða hvað aðrir mögulega sjá í okkur.

 

Við þurfum ekki "selfie" eða myndbirtingar fyrir like til þess að vita hver við erum eða hvers virði við erum, það sem dugar er að VIÐ VITUM SJÁLF AÐ VIÐ ERUM :

Fullomnlega frábærar og verðugar manneskjur, sama hvernig við erum, sama hvaða gráðu við höfum klárað, sama hvar við vinnum, hvernig við klæðumst, og hvernig við erum. Ef þú ert..heiðarleg manneskja þá dugar það!!

Ég gef þér það leyfi núna að TRÚA Á ÞIG eins og þú ert, og eins og þú kemur fyrir nákvæmlega svona, nákvæmlega núna, nákvæmlega alltaf.

​

Svona gæti byrjun á eigin innri vexti litið út, með spurningu sem þarf heiðarlegt svar. 

Allir sem eru ekki allir

​

Afhverju er ég ekki hlaupari eins og allar "hinar"konurnar?

Afhverju er ég ekki á fjöllum eins "allir" hinir?

Afhverju er ég ekki jafn skemmtileg og "allir"?

Afhverju er ég ekki jafn sparsöm eins og "allir" hinir?

Afhverju er ég ekki skipulagðari mamma og finn uppá allskonar eins og "allar" hinar mömmurnar?

Afhverju er ég ekki í Heiðmörk með nestiskörfu og teppi?

 

Þetta allt og allt hitt sem suðar í kollinum á mér, mögulega þér og kannski öðrum eru sjálfs árásir og dómharka í eigin garð. Oft erum við meðvituð en alltof oft erum við ómeðvituð um alla gagnrýnina sem við slengjum framan í okkur dags daglega.

 

Ég er ekki hlaupari frekar en megnið af okkur hinum, sumir eru það hinsvegar, en eg á önnur ahugamál.

Ég fer gjarnan á fjöll en er ekki alvöru fjallageit frekar en margir aðrir, en ég geri ýmislegt annað.

Ég er stór skemmtileg og það dugar.

Hvað er að vera sparsöm? Er ég ekki einmitt mjög pössunarsöm?

Ég er mamma sem börnin hafa alltaf geta treyst á í einu og öllu og ég hef fundið upp á svo mörgu, en virðist gleyma því í eigin gagnrýni.

 

Hvaða árásum lendir þú í frá sjálfu/m/ sjálfri þér?

Ekki trúa öllu því sem suðar í kollinum.

Við gleymum því auðveldlega að þessir " allir" eru ekki allir.

 

Lífstíll annara þarf ekki að vera þinn lífsstíll.

Þakkaðu mér seinna bara.

Til hvers er að hlakka? 

 Það verður hvort sem er aldrei neitt úr þessu....

​

Tilhlökkun er frábær tilfinning sem gefur okkur yfirleitt orkuskot og heldur okkur í jákvæðri spennu.

 

Ég fann ekki fyrir tilhlökkun í mörg ár, giska á að ég hafi tapað þeirri tilfinningu strax í kringum 12,13 ára aldurinn og langt fram eftir aldri.

Réttast er að segja að ég hafi lokað á þá tilfinningu einhversstaðar á lífsleiðinni vegna þess að í minningunni var ég  barn sem hlakkaði til.

Hversu galið er það að loka á góðar tilfinningar?

Það er ekki meira galið en það að líkaminn og hugurinn er alltaf að bregðast við með þeim hætti sem hann telur að sé bestur fyrir okkur. Þetta stýritæki er alltaf að leita leiða til þess að við getum lifað sem bestu lífi. Hver ástæðan er fyrir því að ég hætti að leyfa mér að hlakka til veit ég ekki ,bara ein af þeim tilfinningum sem ég lokaði á.

​

Svo ég hélt bara áfram lífinu án þess að hlakka til nokkurs, í mörg, mörg ár. Ýkjulaust þá var ég búin að gleyma þessari dásamlegu barnslegu tilfinningu.

Í kringum 35 ára, jafnvel seinna, þessi fullorðinsár renna öll í eitt í móðu...fannst mér fátt spennandi.

​

Ég fór seinna að skoða það af alvöru hvað væri að gerast  innra með mér þegar í eitt skiptið sem ég var á leiðinni í vinnuferð á nýjan og spennandi stað. Með mér var samstarfskona mín á svipuðum aldri,  hoppandi af spenningi. Hún upplifði að nú væri eitthvað nýtt framundan;  skemmtilegt verkefni, spennandi staður, ný andlit, nýjar upplifanir. Þarna áttaði ég mig á að ég hefði ekki fundið fyrir því að hlakka til og vera spennt í langan tíma! Leyfa mér að vera barnsleg, fá þennan fiðring, heldur var ég föst í alvarleika lífsins og ábyrgðartilfinningunni og hafði ekki geta vikið frá henni í mörg ár. 

​

Ég veit að ég er ekki ein um að hafa upplifað að ofvaxin ábyrgðartilfinning getur valdið því að við gleymum að njóta líðandi stundar. Sjálf fór ég  markvisst að vinna að því að leyfa mér að hlakka til, finna barnið í sjálfri mér og reyna í það minnsta að kveikja á tilhlökkun. Það er hægt eins og allt annað og er einungis hugarvinna, áminnig og meðvitund

Þú ert aldrei aldrei of gömul, gamall eða gamalt til að upplifa spennu og barnslega gleði.

Service Name

This is a Paragraph. Click on "Edit Text" or double click on the text box to start editing the content.

Service Name

This is a Paragraph. Click on "Edit Text" or double click on the text box to edit the content and make sure to add any relevant information that you want to share with your visitors.

People are genuinely interested in learning more about you, so don’t be afraid to share personal anecdotes to create a more friendly quality.

Service Name

This is a Paragraph. Click on "Edit Text" or double click on the text box to start editing the content.

bottom of page