top of page
Search

Lífið er alltaf að ýta í þig, alveg þar til þú breytir

9 hours ago
2 min read

Gamall póstur frá 2020.


Ég þekki þetta svo vel sjálf.

Sem betur fer eru þeir dagar liðnir að ég leggist í kör vegna þess að ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að taka skref áfram. Eitt sinn var best að láta sér bara líða illa og vonast til að eitthvað breyttist. Það er gott að leyfa sér að vera í tilfinningunni, og oft nauðsynlegt, en mikilvægt að staðna ekki

þar.

Ég er einmitt á þeim stað núna að ég veit að ég þarf að breyta. Lífið er sannarlega að ýta við mér og minna mig á. Ég er að skoða og meta og velta fyrir mér, hvað ég get SJÁLF gert til þess að finna leiðina og halda ekki áfram að troða marvaða og vona að heimurinn færi mér það sem ég þarf. Ég þarf sjálf að finna út úr því hvernig ég ætla að gera þessar breytingar innra með mér.

Það er nefninlega þannig að þó við séum þessum svokallaða "góða stað" með okkur sjálf þá heldur lífið áfram að bera í okkur verkefni. Og þessi verkefni eru tilþess gerð að styrkja okkur. Finnst mér það leiðinlegt? Já mér hefur oft fundist það alveg hrút leiðinlegt og flókið því ég á ekki inni fyrir þeim. EN....þegar ég hef kafað dýpra og þurft að kljást við sjálfa mig þá er það alltaf þannig að ég er svo fáránlega ánægð með þessar áskoranir. EN það er eftir að ég hef tekist á við þær.

Nú ætla ég þessvegna að segja við þig það sama og ég þarf að segja við sjálfa mig þessa dagana.

Taktu á móti vindinum og lærðu að fljúga með, sjáðu hvert hann ber þig., jafnvel þó þú farir í hringi til að byrja með.

Ég veit líka að ef þú ert eins við erum flest þá finnst þér það að fá enn eitt verkefnið í lífinu, enn eina erfiðleikana að yfirstíga, enn eitt flækjustigið, enn eitt vanlíðunar tímabilið...þá langar þig alls ekki að kljást við það, og það er svo fullkomnlega eðlilegt. EN...trúðu samt að það tímabili færi þig ennþá nær því að skilja þig betur.

Pepp dagsins

 
 
 

Comments


bottom of page