Lýst er eftir skapandi manneskju...
Það er auðvelt að týna sjálfum sér.

Ég ímynda mér að það sé sameiginlegt hjá okkur flestum að hafa upplifað það einhverntímann á ævinni að finnast maður vera algjörlega týnd/ur.
Ég hef oftar en ég vil muna gleymt því sem nærir mig. Í mínu tilfelli er það sköpun. Næringin mín liggur í hverskyns sköpun. Það nærir mig að gleyma mér í verkefni sem krefst þess að ég sé að láta reyna á öll skynfærin. Það er í sköpun sem ég "finn" sjálfa mig aftur.
Sköpun getur verið svo margvísleg. Ganga úti í náttúrunni þar sem augað nemur eitthvað sem er vert að staldra við og taka myndir af. Breyta einum hlut í annan. Eiga samtal sem fer um víðan völl. Raða saman blómum. Vera til staðar fyrir aðra.
Sköpun er allstaðar.
Það er skapandi að finna lausnir.
Ég hef verið á þeim stað að vera algjörlega týnd í sjálfri mér. Ég hef ekki vitað hvert ég væri að fara eða hvernig mér liði og það gerðist þegar fótunum hafði verið kippt all verulega undan mér og ég fann ekki jarðtengingu lengur. Það var djúpt á sköpun á þeim tíma, þeirri næringu sem ég helst hefði þurft á að halda til að finna jafnvægið aftur.
Hluti af því að ná að halda jafnvægi er að muna eftir að sinna því sem er okkur mikilvægt. Og hvað er mikilvægt? Það er það sem nærir þig, án næringar visnum við hratt.




Comments