top of page
Search

"Allir" sem eru svo ekki allir.

10 hours ago
2 min read

Afhverju er ég ekki hlaupari eins og "allar" hinar konurnar?

Afhverju er ég ekki á fjöllum eins "allir" hinir?

Afhverju er ég ekki jafn skemmtileg og "allir"?

Afhverju er ég ekki jafn sparsöm eins og "allir" hinir?

Afhverju er ég ekki skipulagðari mamma og finn uppá allskonar eins og "allar" hinar mömmurnar?

Afhverju er ég ekki í Heiðmörk með nestiskörfu og teppi?


Þetta allt og allt hitt sem suðar í kollinum á mér, mögulega þér og kannski öðrum eru sjálfs árásir og dómharka í eigin garð. Oft erum við meðvituð en alltof oft erum við ómeðvituð um alla gagnrýnina sem við slengjum framan í okkur dags daglega.

Og hvernig tengist þetta svo taugakerfinu? Allur samanburður við aðra hefur mikil áhrif á taugakerfið, þú nærð ekki ró þar sem þú ert stöðugt að skammast í þér fyrir að vera ekki eins og þú heldur að þú ættir að vera.


Ég er ekki hlaupari frekar en stór hluti okkar. Margir eru það hinsvegar.

Ég fer gjarnan á fjöll en er ekki alvöru fjallageit frekar en margir aðrir, en ég geri ýmislegt annað.

Ég er stór skemmtileg og það dugar, er það ekki eitthvað sem margir eiga ekki til?

Hvað er að vera sparsöm? Er ég ekki einmitt mjög pössunarsöm?

Ég er mamma sem börnin hafa alltaf geta treyst á í einu og öllu og ég hef fundið upp á svo mörgu, en virðist gleyma því í eigin gagnrýni.


Hvaða árásum lendir þú í frá sjálfu/m/ sjálfri þér?

Ekki trúa öllu því sem suðar í kollinum.

Við gleymum því auðveldlega að þessir " allir" eru ekki allir.


Lífstíll annara þarf ekki að vera þinn lífsstíll.

Þakkaðu mér seinna bara.


 
 
 

Comments


bottom of page