top of page
Search

Að vera meðvitaður um að æsa ekki upp vitleysuna í sjálfum sér.

12 hours ago
2 min read

Þessi póstur er gamall og góður en á ennþá jafn vel við.


Það er ekki langt síðan hausinn á mér fór í þá vitlaustu ferð sem hann hefur farið í lengi, jafnvel í nokkur ár. Ferðalag sem átti sér engin takmörk. Allt þetta hugar ferðalagið var stutt af mínum eigin lygum við sjálfa mig. Hversu ómöguleg ég væri, hvaða röngu leið ég væri á, hvernig líf mitt væri, hvaða misheppnuðu stefnu ég væri að taka ásamt öðrum eldgömlum rótgrónum hugsanamynstrum sem ég hafði unnið að því að uppræta. 

Ég er mjög mennsk, en á sama tíma mjög meðvituð um hugarfar, en samt tókst mér að lenda á þessum stað vitandi betur.

Því miður allra vegna tók ég það skrefinu lengra og leyfði mínu slæma hugar ástandi að tala hátt í stað þess að eiga samtal við sjálfa mig og gera þetta upp innra með mér.


Regla #1 eiga samtalið innra með sér. Þarna var þessi regla algjörlega óvirk.


Ferðalagið stóð stutt yfir, guði sé lof ég var löngu orðin þreytt og langaði aftur í eðlilegt ástand. En þetta var fín áminning fyrir mig manneskjuna sem er talskona sjálfsástar að minna mig á að  sama hvert við erum komin þá erum við manneskjur og okkur verður á að særa okkur sjálf og jafnvel aðra í kjölfarið.

Oft þarf svona skref afturábak til áminningar og koma okkur aftur á rétt spot, við viljum ekki stoppa þarna lengi þegar við höfum náð betri árangri og vitum orðið betur.


Það er bara þannig að við sjálf getum að mörgu leyti haft áhrif á okkar eigið jafnvægi.

​

Þegar ég var komin aftur "heim" í sjálfa mig fannst mér það tilvalið efni í heiðarlegan póst.

Þetta gæti verið áminningin sem við þurfum öll annað slagið. 

Fyrirgefningin er sterkur leikur gagnvart okkur sjálfum, við fyrirgefum öðrum oft auðveldar en okkur sjálfum.



 
 
 

Comments


bottom of page