Hver kann að meta þig?

Þegar við upplifum að umhverfið okkar kunni ekki að meta okkur, fólkið í kringum okkur sjái ekki það góða í okkur eða okkur sé tekið sem sjálfsögðum hlut, þá er gott að bakka aðeins og byrja á að spyrja sig:
KANN ÉG AÐ META MIG ?
Sérð þú í ÞÉR það sem þú óskar eftir að aðrir sjái í þér?
Er þitt eigið álit á þér að þér finnst þú alltaf þurfa að vera einhvernveginn öðruvísi? Finnst þér þú endalaust þurfa að sanna þig fyrir sjálfinu?
Byrjum á réttum enda.
Byrjum á að sættast, hreinlega sættast við okkur sjálf og hver við erum, með öllum okkar kostum og göllum. Það getur verið flókið verkefni en það má þá fá aðstoð við það frá þeim sem vilja þér best.
Við þurfum ekki "selfie" eða myndbirtingar fyrir "like" til að vita hver við erum eða hvers virði við erum. Það dugar að við erum sátt við okkur.
Í augum annara erum við flest fullkomlega frábærar og verðugar manneskjur. Sama hvaða gráðu við höfum klárað, sama hvar við vinnum, hvernig við klæðumst, og hvernig við erum. Ef þú ert..heiðarleg manneskja þá dugar það!!
Ég gef þér það leyfi núna að TRÚA Á ÞIG eins og þú ert, og eins og þú kemur fyrir nákvæmlega svona, nákvæmlega núna, nákvæmlega alltaf.
Svona gæti byrjun á eigin innri vexti litið út, með spurningu sem þarf heiðarlegt svar.




Comments